Emilía Þórný og Anna Soffía

sunnudagur, nóvember 13, 2005

Namminamm!

Emilía er farin að borða af bestu lyst. Hún er nú ekki búin að smakka á mörgu og hún hefur hingað til smjattað á öllu að undanskildri heimagerðu kartöflustöppunni minni... sem hún kúgaðist all rækilega á, greinilega ekki rétt áferð á henni og allt of seig eftir að ég var búin að hræra og stappa allt of mikið á meðan ég var að reyna að fullkomna hana. Á myndinni er hún að smakka majspure frá Semper, næst á dagskrá eru kartöflu og gulrótastappan þeirra.

1 Ummæli:

  • Magnús frændi hennar kúgaðist mikið á heimalöguðu kartöflustöppunni minni, fannst þetta greinilega ekkert gott! Margt er líkt með skyldum.

    Kær kveðja,

    Ingibjörg og strákarnir.

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 9:23 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]



<< Heim