Emilía Þórný og Anna Soffía

fimmtudagur, október 13, 2005

Að snúa sér?

Þá er stóra spurningin, er Emilía farin að snúa sér eða ekki??? Það fer eftir því hvernig það skilgreinist. Já, hún snéri sér algjörlega óvart frá maga yfir á bak í síðustu viku. Varð voða hissa og svo var það ekki endurtekið aftur... Hún fór fyrir rúmum mánuði að snúa sér frá baki yfir á hlið til að teygja sig í dót eða horfa aftur fyrir sig (sjá mynd), en höndin sem er nær gólfinu er alltaf í 90 gráðu vinkli frá líkamanum þannig að hún fer aldrei alla leið yfir á maga. Við bíðum spennt eftir að hún finni út úr þessu.

1 Ummæli:

  • Vá hvað Emilía er orðin stór og myndarleg...
    Kærar kveðjur til ykkar allra!!!

    Höfundur Blogger María, Þann 4:21 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]



<< Heim