Emilía Þórný og Anna Soffía

þriðjudagur, september 27, 2005

Hún er ung og leikur sér...

Emilía er smám saman farin að geta leikið sjálf í lengri og lengri tíma í einu. Eftir að hún fór að geta gripið í hluti og sett þá upp í sig er hún orðin miklu rólegri á teppinu sínu. Það gerðist "breik-þrú" í þessum málum þriðjudaginn þann 30. ágúst, þá var skottan 12,5 vikna gömul og hún varð mikið rólegri fyrir vikið, hafði verið að pirrast heilmikið á því að átta sig ekki á fjarlægð frá hendi til hlutar... ef þið skiljið.
Tölvumálin hjá okkur eru enn ekki alveg komin í lag og við höfum ekki náð gögnum af harðadiskinum okkar, þess vegna eru engar myndir komnar frá sumarfríinu á íslandi, við höldum samt í vonina um að ná í þetta á endanum.

1 Ummæli:

  • "Úff kað maður er orðin dulleg", þetta er svo erfitt !

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 1:50 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]



<< Heim