Viðburðarríkur dagur
Við Emilía fórum í síðasta tímann í ungbarnanuddi í dag og hún fékk "helkroppsmassage" og líkaði það vel. Svo fórum við beint þaðan að hitta Lindu og son hennar Theo á Öppna Förskolan. Þar gerðum við afsteypu af litlu höndunum og fótunum þeirra í gifs, sungum með hinum börnunum og Emilía fékk að sitja í barnastól við borð í fyrsta skipti. Síðan kom hún mér skemmtilega á óvart með því að snúa sér frá baki yfir á maga í fyrsta skipti og Linda varð vittni af því, þannig að ég er ekkert að plata. Þar að auki tókst henni að gera eftirfarandi og geri aðrir betur: kúka í rúmið okkar, pissa á handklæðið í ungbarnanuddinu, æla á bolinn sinn, kúkaði svo tvisvar á leikteppið sitt (var að viðra bossann) og pissaði í gegnum allt í vagninum sínum!! Þvottakarfan er full núna...
2 Ummæli:
Til lukku með viðsnúningin ! Hún virtist líka vera assgoti líkleg til þess arna þarna um kvöldið, hefur augljóslega fundið út hvert hin höndin átti að fara svo hún yrði ekki fyrir ;)
Kram
Maxímus og mamman hans...
Höfundur Begga, Þann 8:24 e.h.
Það verður auðvitað að láta hafa svolítið fyrir sér stundum!!
Það er svo gaman að sjá svona mikið af myndum af prinsessunni og sjá hvernig hún verður stærri og myndarlegri með hverjum deginum. HVer veit nema að maður kíki til ykkar til Stokkhólms bráðlega!!
Bestu kveðjur :)
Höfundur María, Þann 5:18 e.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim