Sætasta brosið
Loksins náðist almennileg mynd af Emilíu Þórnýju brosandi. Fyrsta skiptið sem hún brosti var á fjórða degi þegar hún var að drekka og það kom mjólk. Þá færðust munnvikin uppávið og við bráðnuðum náttúrulega. Núna varir brosið aðeins lengur og nær til augnanna. Henni finnst skemmtilegast þegar einhver er að tala við hana og þá brosir hún gjarnan og hjalar tilbaka.
4 Ummæli:
Ja, það sem maður hefur fullorðnast síðan í síðustu viku, elsku Emilía, alveg hreint ótrúlegt! Og víst er brosið sætt.
Það er svo gaman að sjá nýjar myndir af þér.
Kærar kveðjur frá afa.
Soffía amma
Höfundur Nafnlaus, Þann 10:53 e.h.
Rosa er hún sæt litla prinsessan ykkar.
Við hlökkum mikið til að hitta ykkur þegar þið komi landsins.
Lilja og Natalía Erla
Höfundur Nafnlaus, Þann 11:18 e.h.
Awww... hún er svo sæt! :) Til lukku með lífið segi ég nú bara! :)
Höfundur Hrefna, Þann 4:35 f.h.
Nú eru bara 6 dagar þar til ég fæ að sjá þig í eigin persónu!
Ástarkveðja,
Ingibjörg.
Höfundur Nafnlaus, Þann 8:36 e.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim